Ađalvalmynd

Auglýsing

Daisaku Ikeda

Of course, people want to live long.
But in the end, what matters more is what we have been able to leave behind -- the value we have created in our lives, the number of people we have made happy and how much we have been able to grow and expand as a person.

Buddhism teaches that a single day of life is worth more than all the treasures of the universe.

Innskráningar kubbur


Ég heiti semsagt Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir og er fædd 5. október á því herrans ári, 1992. Það gerir mig semsagt að 17 (til 18 ára) ára gamalli stúlkukind sem býr í Reykjavík. Ég kem þannig séð úr öllum áttum, hef búið í 2 ár í Breiðholti, 2 ár í Grafarholti, 3 ár í Kópavog og 2 og 2 ár hér og þar. Skemmtilegt nokk fyrir ykkur að vita er að ég hef verið í fimm grunnskólum og tveimur menntaskólum, en MH mun því vera sjöundi skólinn sem ég geng í... Þar áður var ég í Verzló, en komst að því að ég er ekki skinku-material, svo ég ákvað að verða artý og fara í MH.

Ég er dökkhærð með brún augu og frekar hávaxin. Þessi brúnu gen virðast ekki alveg vera að skila sér í fjölskyldunni því flest af frændsystkinum mínum í móðurættina eru bláeygð með ljóst hár! Who would have thought?

Allavega, þá á ég 5 systkini, allt hálfsystkini reyndar, en systkini engu að síður. Þau eru öll nokkuð mörgum árum eldri en ég, sem gerir mig að örverpinu (yngsta krakkanum). Ég á tvö systkini í móðurættina en 3 í föðurættina.  Þau eiga síðan öll nokkuð marga krakka svo ég ætla ekki einu sinni að reyna telja upp öll frændsystkini mín...en eitt er víst, summan verður að teljast ágæt.

Mitt aðaláhugamál eru hestar eða hestamennska er mun flottara orð. Ég á sjálf 4 hross en engin í minni fjölskyldu stundar þetta, því miður. Hrossin mín eru semsagt Glóblesa frá Tunguhálsi I, Vordís frá Smáratúni, Fálki frá Smáratúni og Sýn frá Smáratúni, meira um þau má finna hér til hliðar :)
Mér finnst einnig gaman að horfa á góðar bíómyndir, hlusta á góða tónlist, vera með vinunum, teikna, lesa góða bók og svo finnst mér einnig mjög gaman að dýrum (sérstaklega hestum fyrir þá sem ekki hafa tekið eftir því).

Nokkrar skemmtilegar og tilgangslausar staðreyndir um mig :
Uppáhalds gosdrykkurinn minn er Egils Appelsín
Uppáhaldslitirnir mínir eru rauður og fjólublár
Ég elska Subway
Ég nota gleraugu
Og eitthvað margt miklu tilgangslausara en þetta =)

Billeder af mig :

 
Laufskálaréttir, sept 2008 =)


Jááá...ég var einu sinni með topp :)

Prófíll

  • Nafn: Hrafnhildur Helga Guđmundsdóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Atvinna: Fátćkur námsmađur á öđru ári í Menntaskólanum viđ Hamrahlíđ
  • Um mig: Forfallin hestamanneskja sem hefur áhuga á öllu sem tengist hestamennsku, hef gaman af lífinu, leiklist, tónlist (ţó ég kunni ekki ađ glamra á neitt hlóđfćri-ánćgjan felst í ađ hlusta á tónlistina sjáiđi til...), hef gaman af dýrum, ferđast, prófa nýja hluti, góđar bíómyndir og bćkur einnig í miklu uppáhaldi og ég tel sjálfa mig hafa nokkurn áhuga á heimspeki og andlega ţćttinum í lífinu. Algjört freak I know, ekki láta ykkur bregđa.

Sniđugt hestatengt efni

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...