Aðalvalmynd

Auglýsing

Daisaku Ikeda

Of course, people want to live long.
But in the end, what matters more is what we have been able to leave behind -- the value we have created in our lives, the number of people we have made happy and how much we have been able to grow and expand as a person.

Buddhism teaches that a single day of life is worth more than all the treasures of the universe.

Innskráningar kubbur

Langt um liðið....

20. ágúst 2009 klukkan 01:37
Þá eru bara komnir tæpir 2 mánuðir síðan ég lét seinast í mér heyra!
Ég veit að það er ekkert til að monta sig yfir, en því miður ákvað talvan mín að slökkva bara á sér um miðjan júlí og vilja ekkert kveikja á sér aftur. Því var hún búin að vera í viðgerð síðan 15 júlí eða í 5 fjandans vikur sem er auðvitað bara fáránlegt. Ég fékk hana síðan bara aftur í dag, en hún er sem betur fer aftur komin í gott lag núna og með öllum myndunum og draslinu mínu þrátt fyrir að eitthvað hafi verið að harða disknum! Guð minn almáttugur hvað ég er fegin =)
Ég var hérna nagandi á mér neglurnar í 5 vikur yfir því hvort öll gögnin mín væru ónýt,  þar á meðal allar myndir síðustu 2 ára og öll skólagögnin mín... en þá er það búið bara og um að gera að blogga um það sem hefur safnast upp í allt sumar!


Að morgni 16 júní var ég semsagt búin að pakka öllum föggum mínum í Sheepcote og tilbúin að leggja loksins af stað heim. Treylock var svo yndislegur að keyra mig á bus stationið í Hereford, en þar kom babb í bátinn þar sem að miðinn sem ég þurfti í rútuna var einungis hægt að kaupa á hinum enda bæjarins. En bílstjórinn ákvað víst að vera eitthvað góður og hleypti mér upp í bara með því að borga ein 20 pund.
Rútuferðin tók um það bil 4 tíma, frá 9 um morgunin til 1 að hádegi, en ég sá hinar ýmsu sveitir Bretlands sem var bara mjög gaman og áhugavert. Ég alveg hreint elska þessi litlu kósý og sætu „bóndabæi" þarna í sveitum Bretlands =)
Svona þegar ég hugsa um það þá vildi ég miklu frekar eiga heima í litlu þorpi í Bretlandi kannski svona klst frá London heldur en í London sjálfri, þar myndi ég nú held ég bara fara af taugum.

En ég kom á Heathrow um kl 1 og þar sem vélin mín átti ekkert að fara fyrr en um 9 leytið um kvöldið, þá gat ég ekki tékkað mig inn í the actual „fríhöfnina" svo ég þurfti bara að gjöra svo vel að troða mér með mínar föggur á einhvern veitingastað þarna og bíða til kl 7 til að fá að fara inn. Í þessar 6 klst var ég því að teikna og láta mér leiðast á veitingastað á flugvellinum... mesta skemmtun get ég sagt ykkur.

Svo flaug ég bara heim um 9 leytið á breskum tíma en var því komin heim um 11 leytið á íslenskum tíma. Ég var svo bara í mestu makindum að versla í fríhöfninni, nýlent þegar Linda Karen hringir brjáluð í mig og segir mér að Spóla hafi kastað (fætt folaldið fyrir „unhorsey" fólk) fyrr um kvöldið. Ég var auðvitað svo spennt líka að við spóluðum austur á Kjartansstaði til að kíkja á nýfædda folaldið kl 2 um nóttina.
Það kom í ljós að þetta var rauðtvístjörnótt merfolald sem hlaut nafnið Eldey frá Reykjavík. Algjör rúsína þetta kríli =) Var bara um það bil 6 klst gömul þegar við kíktum á hana.
Við komum síðan ekki í bæinn fyrr en kl 5 um nóttina, en þá steinrotaðist maður hreinlega.


Eldey litla, alveg ný greyið, um það bil 6 klst gömul


Örlítið búin að braggast stelpan

Fyrstu vikurnar eftir það var ég bara að tjilla með Lindu upp í hesthúsi og svona, en það var bara búið að ganga ágætlega með Stillingu =)
18. Júní skelltum við okkur austur að kíkja á Eldeyju og einnig graddann sem við vorum að velta fyrir okkur. Graddinn var bara í hörku stuði og var sko fegin því að fá að kíkja aðeins út og hlaupa.


Töfrasonurinn

Linda hélt svo Spólu við graddann um miðjan júní, en við vorum búnar að ákveða að halda hryssunum okkar undir þennan graðhest. Greyið folinn var hreinn sveinn og var svona svolítið hikandi hvernig ætti að fara að þessu, en það gekk upp að lokum og hann stóð sig bara vel í öll skiptin eftir það. Svo ákvað ég að taka Glóblesu og Vordísi inn um sumarið í þeim tilgangi að temja Vordísi og nota Glóblesu til að hjálpa mér.

Svo auðvitað þurfti maður að finna sér vinnu til að halda öllum þessum bykkjum uppi, en ég var svo heppin að fá vinnu í hjúkrunarheimilinu Sóltúni.

Ég fór semsagt í atvinnuviðtal í Sóltúni miðvikudaginn 24. Júní og bara um kvöldið skellti ég mér svo austur að ná í Glóblesu og Vordísi í bæinn, ásamt því að vinna eitthvað í Smárahestasíðunni.
Daginn eftir fórum við í Þykkvabæinn með kerru til að pikka þær upp, en þær áttu að vera í Safamýrinni, risastórum haga í Þykkvabæ. Í stað þess voru þær einu stykki ofar, í haga sem var ennþá stærri!
Þess vegna fauk öll von um að ná Vordísi þar sem réttin var einu stykki neðar og ekki séns að reka allt þetta stóð. En við ætluðum þó að reyna ná í Glóblesu þar sem hún átti að fara undir hestinn.
Kellan stóð bara rétt við hliðið ásamt Vordísi, Fálka og einhverjum hrossum frá Kidda. Ég labbaði því bara beint að henni og náði henni og horfði bara með sorgarsvip á Vordísi sem var þarna rétt hjá. En grunaði ekki Gvend... Vordís elti Glóblesu alla leiðina niður að hliðinu, svo við Kiddi gerðum okkar allra besta til að koma henni yfir brúna og volla! Hún elti Glóblesu alveg án þess að hika yfir brúna, yfir hitt stykkið og yfir aðra brú og bein upp á kerru!!


Vordís á Ásmundarstöðum

Glóblesa sem hefur alltaf verið þessi lóner og utangátta við öll hross var bara allt í einu orðin „foringinn" hjá hrossunum hans Kidda. Svo hafa Vordís og Glóblesa greinilega vingast eitthvað extra mikið en Vordís var nánast eins og folaldið hennar, hún vék ekki frá henni!
Skvísunum var bara skutlað upp á Ásmundarstaði þar sem þær verða í vetur, en seinna um daginn fórum við með Glóblesu upp á Kjartansstaði þar sem hún fékk að vera um nóttina. Hún ætlaði þó ekki að fara burt frá Vordísi og hinum folaldshryssunum, sem voru á túninu hjá Kidda, þegjandi og hljóðalaust svo það endaði á hálftíma elti og brotnum rafmagnsgirðingum... eitthvað sem ég hefði aldrei búist við af þessari góðlátlegu og gæfu meri. Hún hefur víst eitthvað smitast af villieðlinu í hinum folaldshryssunum eða eitthvað, en eitthvað mikið hlýtur að hafa skeð þvi hún var bara að tapa vitinu.


Glóblesa á Kjartansstöðum

Svo um föstudagsmorgunin kom Linda og sótti mig á Ásmundarstaði til þess að halda Glóblesu. Það gekk bara vel en hún var í alveg bullandi látum.
Ég fór bara aftur til Kidda síðan og fékk að ríða með fyrsta daginn í hestferð með liðinu sem á Forsæti í Landeyjunum. Lýdía var að sjálfsögðu þar, en ég var síðan bara í Forsæti um kvöldið að flippa í guitar hero! Alveg glataður gítarleikari hér á ferð...
Það er alveg svakalega flott aðstaða á Forsæti svo að yfirleitt missi ég vatnið bara í hvert skipti sem ég fer þangað, þetta væri svona perfekt aðstaða fyrir mann með flottu landi.

Á laugardaginn flaut ég svo með Kidda í bæinn en á leiðinni héldum við Glóblesu aftur. Um að gera að tryggja árangur sjáiði til ;)
Svo var bara haskað sér í bæinn þar sem brúðkaupið hjá Björg frænku minni og gaurnum hennar, Sigurgeir var kl 4. Það var bara mjög falleg athögn sem stóð alveg til kl 1 um nóttina.

En ekki gat ég bara látið Glóblesu og Vordísi vera fyrir austan svo ég, pabbi og Sigrún skelltum okkur austur eldsnemma á sunnudeginum 28. Júní til að ná í þær. Það reyndist mun auðveldara en ég hélt að ná Vordísi upp á kerruna, en við náðum bara fyrst í Glóblesu á Kjartansstaði (héldum henni í leiðinni) og létum Vordísi elta hana upp á kerruna.
Þær komu svo bara í bæinn og Bjarni járnaði þær fyrir mig. Það gekk ótrúlega vel að járna Vordísi, en ég hafði verið búin að leika mér smá að því að smelliþjálfa hana áður en hann kom og það hafði bara gengið ótrúlega vel. Hún fattaði þetta ekkert smá fljótt og bara út af þessu var hún ótrúlega spök og forvitin ásamt því að það mátti gera mjög mikið við hana án þess að hún flippaði, þar á meðal að járna hana. Þetta var allavega þægasta 3 vetra trippi sem ég hef tekið þátt í að járna eða séð járnað.


Stöllurnar alveg nýkomnar inn =)


Byrjað að trimma og kennt að teymast utan á ;)

Ég byrjaði á Sóltúni 29. Júní en Hildur Ýr var með mig í aðlögun fyrsta daginn. Það er mjög hentugt að vinna einhvers staðar þar sem flestar vinkonur manns eru að vinna er ég búin að komast að =)

3-4 Júlí var Fjórðungsmót Vesturlands á Kaldármelum og auðvitað þurftum við stelpurnar að skella okkur. Ég, Inga Lára, Selma,  Hildur og Sigrún fórum því allar vestur með tjaldið og bakpokann og skemmtum okkur bara mjög vel. Þetta var hörkustuð þarna, en eins og allir vita finnur maður hvergi skemmtilegri djammara en hestafólk ;D


Fjör á Kaldármelum =D

Það gekk síðan bara eftir það ótrúlega vel með Vordísi, en hún vildi fyrst ekkert mikið lónserast, heldur reyndi hún að prjóna yfir gerðið og þegar það virkaði ekki reyndi hún að gefa mér nokkur vel valin spörk með afturendanum þegar ég pikkaði í hana með písknum. Hún var þó fljót að átta sig hvað hún ætti að gera með smá hjálp frá smelluþjálfuninni.
Ég henti svo bara hnakk á hana í fyrsta skipti 11 júlí og um það bil viku seinna skellti ég mér á bak á henni í fyrsta skipti. Hún var bara eins og engill og gerði ekki neitt, en það gæti auðvitað verið út af því að hún er of lítil til að gera nokkurn skapan hlut.


Fyrsta skipti með hnakkinn

Glóblesa fór í sónar 15. Júlí og það kom í ljós að hún væri með fyli, en ég er varla enn búin að átta mig á þeim fréttum þar sem þetta er allt svo súrrealískt. Glóblesa að verða mamma og ég amma! Og ég verð ræktandinn á þessu hrossi... það finnst mér allt svo fyndið og óraunverulegt svona eins og ástandið er í dag =) hehe
En það var nú svolítið skondið að horfa upp á breytinguna á því hvernig hryssan lét, en venjulega var hún ekkert að böggast í neinum hrossum nema þau bögguðust í henni á undan. Núna lætur hún eins og fáviti, bítandi alla sem koma nálægt henni og sparkandi og alveg svakalegt stuð bara... Hormónakerfið hennar greinilega alveg í ruglinu.


Hún er alveg ótrúlega fasmikil þessi hryssa...það verður bara að segjast eins og er... vonandi verður barnið í bumbunni það líka =)

En svo kíkti ég líka vestur á Tálknafjörð á ættarmót í föðurfjölskyldunni 17-19 júlí en það var bara alveg ágætt. Auður og co og Alli og co fengu að fljóta með undir því yfirskini að vera fóstubörn pabba svo það var bara mjög fínt að hafa þau líka =)

Þegar ég kom heim að vestan dreif ég mig bara að fara á bak á Vordísi bundna utan á og svo ein, en ég var byrjuð að ríða henni einni bara út um allt eftir viku. Þetta hross er algjört gæðablóð og virkilega geðgóð og mig hlakkar bara soldið til að fara vinna meira með hana. Laflaus gangur og virðist viljug áfram og engin hræðsla. Enn sem komið er ríð ég henni einungis á Beisli án Méla, en hennar vegna ætla ég að kenna henni á mél í vetur, ef ég sel hana einhverntíman. Ég reið henni úti og bara út um allt með Beisli án Méla og hún hlýddi mér í einu og öllu, alveg frábær tjáskiptaleið, sérstaklega fyrir trippi.


Við á leið í reiðtúr, mamma ekki alveg að fatta að fæturnir tilheyra hestinum líka ;)

Þar sem Vordís var orðin reiðfær og Glóblesa snargeðveik í reið sem og í umgengni vildi ég bara setja þær út aftur sem fyrst svo við hentum þeim bara út 6. Ágúst en Linda henti líka Stillingu út þá. Þær voru nú held ég ansi fegnar frelsinu, en alltaf þegar ég setti þær út að bíta hjá hesthúsinu þá voru þær að hlaupa á milli grasbletta og var komin svona smá leikur í þær.
Vordís var orðin ekkert smá spök og ég náði bara í hana eins og ekkert væri þegar ég sleppti henni til að bíta. Hún kannski verður bara svona ligeglad og yfirveguð eins og Glóblesa =)


Mín að éta með fallega græna stallmúlinn sem var sérstaklega keyptur fyrir hana =)

Ég fór síðan líka í hvalaskoðun í sumar, með mömmu, pabba, Markúsi og Alla litla en það var bara ósköp gaman og áhugavert. Við sáum einhverjar nokkrar hrefnur, hnýðinga og svo hnúfubak sem sýndi sig sko alveg slatta mikið fyrir framan skipin. Hann kom ekkert smá nálægt bátnum sem við vorum á og sýndi bakið og sporðinn og allt klabbið bara. Mjög skemmtilegt að sjá þetta og hrein synd að leyfilegt skuli að veiða þá.

Annars hef ég bara verið að vinna og svona í sumar og gert lítið annað en að vera hestast og vinna á Sóltúni og næla sér í svona smá pening. Ég fór reyndar 11. Ágúst með Lindu að skoða Eldeyju og láta sóna Spólu. Spóla var líka fylfull svo við eigum von á samfeðra systkinum undan systrum... mjög svo skondið =)
Eldey var líka bara orðin hörkuskvísa, orin stór og fín og orðin sótrauð! Öfund! =D hehe

En ég segi þetta bara gott í bili, enda er þetta practically allt sumarið mitt í hnotskurn ;)


Svona ein sæt að lokum =) Hún leyfði mér að klappa sér og allt liggjandi

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Fátækur námsmaður á öðru ári í Menntaskólanum við Hamrahlíð
  • Um mig: Forfallin hestamanneskja sem hefur áhuga á öllu sem tengist hestamennsku, hef gaman af lífinu, leiklist, tónlist (þó ég kunni ekki að glamra á neitt hlóðfæri-ánægjan felst í að hlusta á tónlistina sjáiði til...), hef gaman af dýrum, ferðast, prófa nýja hluti, góðar bíómyndir og bækur einnig í miklu uppáhaldi og ég tel sjálfa mig hafa nokkurn áhuga á heimspeki og andlega þættinum í lífinu. Algjört freak I know, ekki láta ykkur bregða.

Sniðugt hestatengt efni

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...