Draumórar...
Á þessum tíma eftir 2 daga verð ég víst í hinu mikla Englandi að sötra bjór á pöbbunum og að skoða hele London! Gotta love it!
En eins og flestir vita, sem hafa eitthvað við mig að sælda allavega, er að för minni er nú heitið til Sheepcote, en það er víst svaka virtur reiðskóli þarna hið ytra með þeim virtu reiðkennurum, David og Serena Pincus. Þau kenna list dressúrsins eða „dressage" eins og alvöru Bretar segja það og eru eflaust mjög góð í því. Í bland við það að moka skít og kemba hestum fæ ég svo kennslu frá þessum reiðkennurum sem ég vona að verði skemmtilegt, eitthvað öðruvísi en komi samt að gagni við þjálfun íslenska hestsins. Það virkar víst ekkert annað en bara að taka á því og verða algjört „pró" í þessu dressage dæmi, ekkert kjaftæði.

Þetta er víst húsið (mynd sem ég fann á facebook)
Hereford - bærinn rétt hjá
Þetta er víst einn af þremur "yeard"um...(facebook)
Um daginn var Kiddi kallinn svo æðislegur að senda mér myndir af Sýn minni, en þar sem ég hef aldrei séð þessa dömu hreyfa sig voru þær eins og gjöf frá hinum miskunnarfulla guði. Mér finnst þessar myndir bara lofa nokkuð góðu og hún virðist alveg sem betur fer ætla fá þetta blessaða afturfótaskref sem fylgir Töfraættinni. Kiddi sagði að hún væri alveg hörkuefni, flugrúm og væri eflaust flugvökur líka. Nohh, þarna er ég bara komin með hvorki meira né minna en tvær fimmgangshryssur, what a joy!
Svo er ég alltaf jafn mikill stalker á netinu og hef því verið að fylgjast með föður Sýnar, honum Sjón frá Hákoti. Hann er nú kominn til Austurríkis í hendur nýja eiganda síns en þar sem netið er svo yndislegt og gerir manni kleift að leita að öllu, þá hef ég fundið nokkrar myndir af honum hið ytra.
Hérna er smá preview af Sýn og Sjón :


Sýn í stuði - öll tætt og sæt
Sjón frá Hákoti
Elska herðarnar!!
En nú er ég loksins búin í prófunum og komin í sumarfrí og ég er án efa að fíla það í tætlur! Ekki fleiri tvöfaldir stæ eða bók tímar, heldur einungis frelsið og hestaskíturinn! Ég held ég geti sagt með nokkurri staðfestu að ég hafi náð flestum prófunum (þetta væri frekar vandræðalegt statement ef ég hef síðan fallið á flest öllu) nema kannski stærðfræði, en það óguðlega fag hefur ætíð haft horn í síðu minni. Ég fer að hágrenja ef ég næ ekki þessari bölvuðu stærðfræði,því það er ekki mögulegur séns að ég sé að fara sitja yfir stæ 203 í fjarnámi í sumar, bara ekki séns.
Því er um að gera að vera bjartsýn og segja að ég hafi náð öllum prófunum með glæsibrag =D
Ég væri nú samt ekkert hissa á því að próftarnir væru bara eitt heljarstórt samsæri ríkistjórnarinnar um að fá öll ungmenni til að leggjast í þunglyndi og éta sig stútfull af nammi á meðan prófum stendur, sem vill svo til að sé besta leiðin til að bæta meiri líkamsfitu á sig. Annað eins hefur nú gerst í heiminum.... síðan er verið að tala um offituvandamál í heiminum, en ég get lofað ykkur því að þetta er besta leiðin til að verða svo útroðin af fitu, þreytu og stressi að ef það væri til leið til að mæla fitu landsmanna þá myndi vogin fljúga upp úr öllu valdi í prófatörnum.
Kannski maður ætti bara að búa til öðruvísi Zeitgeist mynd... „Zeitgeist : Weight problems during exams hoax!"
En að einhverju allt öðru... Þá er ég búin að ákveða gegn minni betri vitund að halda Glóblesu þetta árið. Mín undirmeðvitund hefur víst farið á flug alveg sjálfstætt og sneitt frammhjá þeim hluta heilans sem styður rökhugsun og tekið þá ákvörðun að halda merinni undir Töfratittinn. Og það vill svo skemmtilega til að á meðan undirmeðvitundin var að taka þessa ákvörðun þá fóru hormónarnir að segja til sín og nú er ég orðin að þessari overexcited „ömmu" (kaldhæðnislegt...I know) sem getur ekki beðið eftir afkvæminu, þó að það sé ekki einu sinni búið að leggja grunnin að því. Ég er búin að gera lista yfir nöfn á folaldið, ég er búin að ákveða hvernig útlitið skal vera, liturinn og skapgerðin og svo á þetta helst að vera meri...
Greyið Glóblesa sem er bara að chilla í sínum haga í Þykkvabænum veit ekkert hvað bíður hennar. Ég efast nú samt stórlega um að hún fari að mótmæla eitthvað harðlega þar sem hún hefur nú áður haft mikið fyrir því að ná sér í drátt. Hoppað yfir nokkrar girðingar og skurði, ekkert stórmál neitt. Bara sprautað tvisvar úr henni fylið þar sem sá getnaðarlegi var faðir hennar, en ég hef það sterklega á tilfinningunni að afkvæmið hefði átt frekar erfitt greyið. Talandi um sifjaspell....

Glóblesa - taka smá ull á þetta...
En sá sem fær þann heiður að fá að hoppa upp á Glóblesu er sótrauður 3 vetra foli undan Töfra frá Kjartansstöðum. Spurning hvort honum takist að tjónka við þessa meri þar sem hún getur verið soddan tussa stundum. Ég og Linda Karen fórum um daginn á Kjartansstaði og skoðuðum þann sótrauða ásamt einum brúnum og smelltum af nokkrum myndum, svo endilega share hvað ykkur finnst um stóðhestaefnið. Ekki láta mig halda undir drasl fólk! Það er bara cuel =P (Ég held nú samt að ég myndi gera það hvað sem ykkur finnst...)



Erum við að tala um rými eða??
Svo verð ég að gerast smá þjóðleg... og hrósa Jóhönnu Guðrúnu (aldrei hélt ég að ég myndi upplifa það) fyrir frábæra frammistöðu í Moskvu í gærkveldi þar sem hún flutti framlag Íslendinga í Eurovision. Mér fannst þetta bara eitt af bestu flutningum kvöldsins (án þess að reyna vera hlutdræg) þar sem mér fannst þetta einfalt, fallegt svið og ekki ruglandi melódía.
Vonandi gengur okkur síða vel á laugardaginn en ætlunin er að lauma sér á einhvern pöbb í UK sem sýnir þetta... spurning hvernig það á eftir að ganga.
En að lokum, þá vill ég spyrja álits á nokkrum nöfnum sem ég ætla nefna frumburðinn minn =D ( I aldready know að ég er lúði, svo vinsamlegast þurfiði ekki að taka það fram)
Merar :
Diljá - Djörfung - Freisting - Frostrós - Hending - Hera - Hylling - Korka - Melrós - Ólga - Prýði - Salka - Sókn - Rausn - Vaka - Vorrós - Vænting - Völva - Valka
Hestar :
Bjarki - Breki - Drómi - Dökkvi - Darri - Fáfnir - Frami - Fróði - Glæðir - Hektor - Hljómur - Hugi - ísak - Logi - Loki - Lokkur - Mímir - Nökkvi - Rökkvi - Sómi - Sölvi - Þengill
Ég fæ eitt svona stykki árið 2010!!!
Nökkvi, Frami, Hljómur.... dunno!
Vona að það sé allt gott hjá þér
Lovja

Efnileg meri: Vænting ( bindur væntingar til hennar)
Ef þetta verður efnilegur tittur þá er sniðugt að nefna hann Frami (kannski á hann eftir að eiga glæstan frama frammundan.)
Svo er ég alltaf veik fyrir nafninu Ísak, en það passar oftast bara við grá hross haha :) alfitum bara folaldið þegar það kemur í heiminn !