Ađalvalmynd

Auglýsing

Daisaku Ikeda

Of course, people want to live long.
But in the end, what matters more is what we have been able to leave behind -- the value we have created in our lives, the number of people we have made happy and how much we have been able to grow and expand as a person.

Buddhism teaches that a single day of life is worth more than all the treasures of the universe.

Innskráningar kubbur

Nagandi hugdettur

29. apríl 2009 klukkan 20:33

Heyrðu, nú er alveg að koma sumar og þá eiga hugdetturnar það til að detta niður í hausinn á manni...
Einni svoleiðis laust nú niður í hausinn á mér í dag, en það er hvort ég eigi bara ekki að halda fröken Glóblesu undir graðhest núna í sumar!
Ég veit hvað mörg ykkar hugsa núna ; "Hvað ertu að spá stelpuskratti? Þú átt nú þegar 4 hross!". og ég geri mér fyllilega grein fyrir því að 4 hross er meira en nóg fyrir 17 stelpuskjátu, en mér til varnar þá er þetta soldið svona one time oppurtunity. Gæti svona mögulega kannski bara kannski haldið undir graðtitt undan Töfra frá Kjartansstöðum.
Og flest ykkar vita að ég hef soft spot fyrir hinum töfrandi Töfra frá Kjartansstöðum svo don't blame me...

Mig hefur alltaf langað að prófa fá folald unda Glóblesu og sjá hvernig sá gripur kemur út, þar sem ég held að merin geti alveg skilað ágætlega góðu ef hún fer undir rétta hestinn. Glóblesa er hágeng á tölti, frekar smástíg samt og með hjartarháls. Því þarf hún hest með rúmt tölt, vel settan háls og með styttra bak en hún. Draumahrossið mitt væri nefnilega með persónuleikann hennar Glóblesu minnar, hennar fas og fínleika, en með betri byggingu og með betur settar herðar. Hann þyrfti einnig að vera með góðar grunngangtegundir og helst 5-gangs svo ég fengi ekki annan brokkstamp.

En þetta kemur víst allt í ljós, ég á nú einu sinni 2 merar til viðbótar sem ég get sett undir eftir nokkur ár, en ég er alveg handviss um að ég ætla halda Glóblesu á næstu árum, ég vill fá litla Glóblesu 2 nema með betri byggingu!

Svo finnst mér algjör synd hversu margir góðir graðhestar eru að fara út landi eða fóru úr landi árið 2008. Krummi frá Blesastöðum er farinn út, Möller frá Blesastöðum er á leiðinni út, Örn frá Efri-Gegnishólum farinn út og einnig Rökkvi frá Hárlaugsstöðum. Þetta eru allt hestar sem ég hefði vel getað hugsað mér að nota í framtíðinni en nei, þeim er bara skellt út við fyrsta tilboð! Mér finnst að við eigum að halda eftir Orralausu hrossunum á landinu en dæla Orrahausunum út svo landið verði með eitthvað annað en arfhreina Orrakynslóð.

En nú ætla ég fyrir alvöru að bæta fleiri myndum inn á þessa blessuðu síðu, enda myndirnar síðan síðast ekki ennþá komnar inn.
Og fyrir þá sem eru áhugasamir um Bretlandsförina mína, þá fer ég út eftir 16 og hálfan dag og ætla reyna vera duglega að skrásetja dvöl mína hið ytra. Myndirnar fara eflaust bara á fjésbókina þar sem ég nenni ekki alltaf að setja þær allar inn hérna. 
Og eitt fyndnasta í heimi! Ég fann facebook grúppu með liði sem hefur verið þarna á Sheepcote og myndir og allt! Það er komin enginn smá fiðringur í magann á mér núna maður!

Prófin eru líka byrjuð, fór í Excel próf í dag, og gekk bara mun betur en ég þorði að vona. Svo á ég nú að vera læra fyrir enskuprófið sem er á morgun, en einhvernveginn kann ég bara ekki að læra fyrir ensku, svo ég er bara í góðu róli hérna horfandi á Gossip Girl og bloggandi, algjör tossi I know.

En ég ætla þá ekki að hafa þetta lengra að sinni og reyna fara læra hið glæsta tungumáli, enskuna.

Hver veit nema ég verði bara komin til UK næst þegar ég hripa eitthvað hér niður! ;) 



Kveðja, Hrafnhildur ljóshærða!

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Hrafnhildur Helga Guđmundsdóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Atvinna: Fátćkur námsmađur á öđru ári í Menntaskólanum viđ Hamrahlíđ
  • Um mig: Forfallin hestamanneskja sem hefur áhuga á öllu sem tengist hestamennsku, hef gaman af lífinu, leiklist, tónlist (ţó ég kunni ekki ađ glamra á neitt hlóđfćri-ánćgjan felst í ađ hlusta á tónlistina sjáiđi til...), hef gaman af dýrum, ferđast, prófa nýja hluti, góđar bíómyndir og bćkur einnig í miklu uppáhaldi og ég tel sjálfa mig hafa nokkurn áhuga á heimspeki og andlega ţćttinum í lífinu. Algjört freak I know, ekki láta ykkur bregđa.

Sniđugt hestatengt efni

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...