Ábyrgðarmaður?
Eins og svo margir Íslendingar þá spái ég stundum í þessu ástandi sem við lifum í á þessari guðsvoluðu eyju hérna langt út í Atlantshafi. Undanfarið hef ég verið að spá og spegúlera í þessu öllu saman og fór allt í einu að velta fyrir mér hver væri ábyrgður að þesum ósköpum? Og afhverju í andskotanum þurfa þeir ábyrgu ekkert að gjalda?
Nú... og þá datt nafnið Davíð Oddson niður í hausinn á mér, enda er hann alveg blásaklaus að eigin sök (nei afsakið... „sögn") og segist ekki hafa átt neinn þátt í þessu. Ég er hins vegar á öðru máli, hvernig getur verið að sjálfur Seðlabankastjóri Íslands hafi ekki vitað af eitthverju svona, og þó hann hafi vitað það og „varað við þessu" eins og hann segir að hann hafi gert, afhverju gekk hann ekki lengra með það að segja fólki þetta? Ekki vissi ég af þessu... að Ísland gæti verið að fara á hausinn?
Í fyrsta lagi og það sem er mest fáránlegt er að sökudólgarnir að þessu rugli eru bara vappandi um í sínum einkaflugvélum og BMW ENNÞÁ, meðan kreppan bitnar á average Joe (okkur þ.e.a.s.) og fólk getur rétt svo skrimt út mánuðinn. Engum er haldið ábyrgum, enginn er dæmdur fyrir neitt fjársvik og Davíð Oddson er ennþá leikandi lausum hala, með sínar milljónir í eftirlaun og reynandi að gera allt vitlaust allsstaðar. Fyrirgefiði mér, en ég ætla bara að segja það straight út, en mér finnst Davíð Oddson vera asni. Hann lítur ekki einungis út fyrir að vera asni, heldur lætur hann þannig líka. Það liggur við að maður heyri ekkert nema hrín þegar þessi blessaði skratti opnar á sér kjaftinn.
Nú fer fólk að spurja sig, hvað gerði Davíð Oddson eiginlega? Ég verð að vera hreinskilin og segja að hann gerði mér ekkert persónulega, og reyndar hef ég ekki eins góða hugmynd og ég vildi um hvaða skandal hann olli, en eitt er víst að sá skandall var mikill! Þessi maður var einn af fáum sem náðu að setja heilt land á hausinn!
Mér er víst sagt að hann hafi verið frumkvöðullinn að einkavæðingu bankanna, sem olli því að bankarnir gengu berserksgang og lánuðu öllum jafnvel þó peningurinn fyrir því væri ekki fyrir hendi. Hann hafi semsagt bara setið þarna og horft á og verið ekkert að spá í hvað allir millarnir væru að leika sér að. Eða bara hreinlega að hann hafi tekið þátt í því...? Stórt er spurt.
Davíð Oddson er mjög klókur maður, því getur enginn, ekki einu sinni heimsspekingur eða viðskiptafræðingur, neitað. Hann er með fágæta orðsnilli og fær fólk fljótt á sitt band, það er augljóst miðað við þá Sjálfstæðismenn sem hanga ennþá utan á honum eins og hundar á beinum þrátt fyrir allt þetta endemis rugl. Það sem mér fannst mest sanna hvað Davíð væri þrjóskur og treggáfaður maður (á annarra manna álit þá, engin tenging við almennar gáfur mannsins), var að þrátt fyrir ítrekar beiðnir frá stjórnmálamönnum (bara Jóhönnu reyndar, enginn hinna þorði að sparka honum út úr fjármálaeftirlitinu, hann hlýtur að hafa alveg deadly augnaráð fyrst fólk þorði ekki að gera neitt) og allri heilu helvítis þjóðinni,þá vildi þessi maður ekki víkja úr starfi.
Það liggur við að það hafi þurft að bera hann út á börum, hann var svo límdur við hásætið sitt. Enda ekkert skrítið, það er örugglega betra að vera seðlabankastjóri heldur en gamall forsætisráðherra á eftirlaunum.
Semsagt... gæti stórmennskubrjálæði Davíð Oddsonar og fleira fávita verið ástæðan fyrir því að amma mín, foreldrar mínir, ég, börnin mín, barnabörnin mín og jafnvel barnabarnabörn erum skuldsett til æviloka? Eigum við bara að sitja hjá og sætta okkur við það að það eru rúmlega 2 milljóna skuld á hvern landsmann vegna Icesave (ekki að það sé honum að kenna), já..jafnvel þó að sá landsmaður sé 2 vikna eða áttræður. Munu Íslendingar láta einhverja taka ábyrgð á þessum fávitaskap eða ætlum við bara að brosa sólheimabrosinu út í heiminn?
Ég mun sko hreinlega ekki láta einhvern Davíð Oddson og Davíð Oddson's wannabes skuldsetja mig, fyrr flyt ég úr landi! Og hafðu það Davíð, þú munt sitja hérna einn eftir með krumlurnar hangandi í gömlu krónunni.
Nú tek ég bara fram að þetta er einungis smá léttúð með grín ívafi sem enginn ætti að taka of alvarlega. Auðvitað er Dabbi kallinn ekki einn valdur að þessu, en greyið má eiga það að það eru fáir Íslendingar ánægðir með hann eins og staðan er í dag. Ef einhverjir yrðu látnir axla ábyrgð vegna þessa finnst mér að Davíð ætti að gefa sinn skerf, en ég veit fullvel að þetta er ekki einungis honum að kenna. Vandamálið er bara að hann fer ósköp mikið í mínar fínustu taugar, ætli það hafi ekki verið ástæðan fyrir að ég fór eitthvað að babbla um hann.
Úff... Ég bara varð að nöldra smá, ég hef verið að velta þessu lengi fyrir mér og finnst ennþá fáránlegt afhverju Davíð og FLEIRI sökudólgar eru bara í góðum fíling heima hjá sér með sinn kaffibolla og lesandi moggann? Ef einhver svara þessari spurningu vel þá er ég hætt að nöldra um málefni sem koma mér ekkert við...
Eeen að léttari efnum... Þá eru páskarnir komnir og farnir. Ég skellti mér upp í bústað á miðvikudagskvöldið 8 apríl og kom heim 13 apríl. Missti því miður bara af hörkupartýi var mér sagt. En það vildi svo til að öll fjölskyldan var þarna í bústaðnum samankomin; ég, foreldrar mínir, systkini mín og börnin þeirra, við vorum semsagt 7 fullorðin og 5 yngri strákar en 8 ára... Imagine the fun people!
Það gekk svona upp af ofan, en að vakna kl hálf átta við barnaöskur, éta loads af nammi og páskaeggjum og éta góðan mat er alltaf mjög gaman - en þó í hófi. =)
Vordís fegurðardrottning
Engir smá taktar í minni
Svo eftir að hafa nuðað og suðað í minni heittelskuðu móður fórum við og skoðuðum litlu aparassana mína (trippin mín) og mér fannst það ekkert smá gaman! Vordís er búin að þroskast alveg heil ósköp og hún var sko alveg að vilja sniffa svona aðeins af manni. Þessi litla dvöl þá þarna um árið hefur þá gert smá gagn! En Fálki... já, Fálki leit eiginlega ekki jafnvel út og Vordís... Hann leit frekar svona út eins og róni.
Hann var drulluloðinn, tættur og með allt of stórt rassgat og lítinn haus XD. Þetta var rosalega fyndið að sjá hann þar sem hlutföllin eru fokin út um gluggan um stundarsakir hjá honum. 
Ekkert spenntur fyrir því að tala við mann
Og hljóp að lokum bara í burtu =P
Svo var Auður systir svo yndisleg að koma með mér að skoða nýjasta gripinn, hana Sýn. Hún var nú frekar stygg (eins og flest folöld eru) og vildi lítið láta mynda sig, en ég náði að smella af nokkrum. Þær verða bara að duga eins og er.

Sýn - nýjasti gripurinn
Smá andlitsmynd - ekkert smá bitchy look XD
Núna eru síðan bara mánuður upp á dag þangað til ég fer út til Bretlands! Þetta er ekkert smá fljótt að líða, þessi tími. Prófin byrja eftir tæpar tvær vikur, og ég er á góðri leið með að falla í bókfærslu og stærðfræði. Þessi tvö fög eru ekki mín fög... hvað er ég eiginlega að gera í VERSLUNARskólanum? Ég spyr nú bara...
En maður er nú alltaf að reyna skapa sér atvinnu á þessum síðustu og verstu tímum. Það vill svo til að ég er farin að hreyfa einhverja gráa meri fyrir eina konu. Merin var bara fín mestan hlutann nema með einhverja leiðinlega frekju og vilja rjúka heim í kanínuhoppum, en það er svona, monningar eru monningar, and I need'em ;D
En það gengur svona allt í lagi með Glóblesu, hún er orðin svo vaxin greyið að það gerir henni örugglega erfiðara fyrir. Hefði þurft að járna hana fyrir löngu, en þar sem það eru núna bara 2 vikur þangað til hún fer út vil ég ekki eyða pening í það. Loksins fær greyið merin langt sumarfrí, hún á sko alveg örugglega eftir að njóta þess í ystu æsar =)
Spurning hvort maður eigi að henda henni undir hest?? =P Það má vel pæla í því =D
En já, ætli ég sé kki búin að röfla alveg nóg í kvöld, ætla nú að reyna blogga áður en ég fer út, þrátt fyrir allt stressið í kringum prófin og svona =)
Og ein svona krúttó mynd að lokum...
Þetta vissiru ekki haaa?
En gott blogg engu að síður, like always.
Síðan er bara að drífa sig í pólitíkina og láta verkin tala ;-)
