Ađalvalmynd

Auglýsing

Daisaku Ikeda

Of course, people want to live long.
But in the end, what matters more is what we have been able to leave behind -- the value we have created in our lives, the number of people we have made happy and how much we have been able to grow and expand as a person.

Buddhism teaches that a single day of life is worth more than all the treasures of the universe.

Innskráningar kubbur

Allt og ekkert...

23. mars 2009 klukkan 23:21
Já... Þá er kannski einna helst að segja frá því að nýr unglingaklúbbur hefur tekið til starfa í Fák, og sú stjórn ætlar sko að taka til hendinni og leita greipar sópa um félagið og pikka upp krakka hér og þar.

Til að orða þetta á ögn málefnalegri hátt, þá er búið að stofna nýjan æskulýðsklúbb í hestamannafélaginu Fák. Klúbburinn ber nafnið Unglingaklúbbur Fáks, og er ég víst komin í stjórnina í þeim klúbbi. Sá klúbbur ætlar sér stóra hluti en ef fólk vill kynna sér hann, þá er bara að smella sér á þessa síðu fljótlega þvi von bráðar kemur tengill á síðuna ;)



Stjórn Unglingaklúbbs Fáks - algjörir snillingar!
Frá vinstri : Ég, Viktoría, Sigrún, Hrafn og loks Eyrún (allir á gæðingunum)

En við í Unglingaklúbb Fáks ætlum síðan að halda smalamót næstkomandi sunnudag, í Reiðhöllinni Víðidal.
Knapafundur er á föstudaginn og ef einhvern hefur áhuga á að keppa er skyldumæting á knapafundinn, skráning og upplýsingar verða þar. Þetta verður gúrmei...! Mætiði!

Anyways... að öðru... þá bara er búið að ganga sækó vel með Glóblesu mína =D Ég er bara orðlaus, þar sem í vikunni þar áður gekk allt á afturfótunum! Alveg ótrúlegt hvernig þessi blessaða meri er, en mér þykir svo vænt um hana að allt svona details eru ekki til umræðu.
Svo er hún alveg hreint ótrúleg, en um daginn komu litlu frændur mínir, þeir Aðalsteinn og Markús upp í hesthús og fengu að fara á hestbak. Glóblesa (og strákarnir reyndar líka) stóðu sig eins og hetjur og allt gekk þetta áfallalaust fyrir sig. Gaman að reyna smita hestabakteríuna áfram til einhverra í familíunni!



Markús hestasnilli, bara merin flottari undir honum en mér =P



Bræðurnir saman; Markús og Aðalsteinn, og afi gamli fékk af fljóta með



Þetta er víst hesthúsið sem ég er í, alveg ótrúlega kósy pleis



Glóblesa alveg að fíla sig hérna...

Og það virðist bara sem óheppnin elti mig á röndum! Það er LÍKA búið að stelpa iPodinum mínum, en ég var í ræktinni seinasta þriðjudag og horfi ekki á iPodinn í 5 min og þá var hann horfinn í búningsklefanum! Það er greinilega ekki nóg að láta stela af mér síma og myndavél, iPodinn þurfti líka að fylgja!
Þá er búið að stela af mér myndavél, síma og iPod allt á innan við hálfu ári. Ojj segi ég nú bara... Life is SO unfair!

En nú er ég orðin svo spennt á að komast til Bretlands að ég tel niður dagana, en í dag eru ákkúrat 7 vikur og 5 dagar þangað til ég fer út! =O
Eins og sönnum túrista sæmir þá er ég búin að liggja á netinu að reyna finna upplýsingar um pleisið, gúgglaði alveg eins og brjálæðingur og svo notaði meira að segja google earth til að finna staðsetninguna og umhverfið og svona. Og ég komst að því að þetta er í Bartestree sem er svona á stærð við Þykkvabæinn, lítið krúttlegt samfélag og svo eru 10 min keyrsla í bæinn Hereford =) Hreint ekki slæmt.
Og getiði hvað ég fann! Blogg hjá amerískri gellu sem var þarna! Vá hvað það hefur bjargað mér alveg... Maður fékk svona aðeins að sjá inní hvernig þetta væri og hver dagskráin væri og svona og ég er bara orðin nett spennt fyrir þessu!



Og ef fólk vill að ég haldi áfram þessari bloggvitleysu verður fólk að fara commenta! Give me some credit guys! =P

Læt fylgja nokkrar myndir fljóta með...



Þau eru öll alveg æðisleg krútt, ég alveg að fíla mig ekkert smá artí



Úff...wild animal =P



Haha...já þið megið hlæja.... Við Blesa í ágúst 2005



hæhæ hrafnhildur mín ég vildi nú bara gefa þér smá credit hérna! ég skoða síðuna þína mjög reglulega og það er alltaf jafn skemmtilegt, að lesa það sem kemur útúr þér er líka alveg frábært" :D þú nærð að umorða allt svo skemmtilega! :)
en ég sé þig stjórnarmeðlimur! ;**
#1
24. mars 2009 klukkan 22:53
 
Sigrún
Já þarna þekki ég kellinguna :D
Almennilegt blogg like always !
*snapsnaps*
Sjáumst stjórnarmeðlimur :)
#2
24. mars 2009 klukkan 23:48

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Hrafnhildur Helga Guđmundsdóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Atvinna: Fátćkur námsmađur á öđru ári í Menntaskólanum viđ Hamrahlíđ
  • Um mig: Forfallin hestamanneskja sem hefur áhuga á öllu sem tengist hestamennsku, hef gaman af lífinu, leiklist, tónlist (ţó ég kunni ekki ađ glamra á neitt hlóđfćri-ánćgjan felst í ađ hlusta á tónlistina sjáiđi til...), hef gaman af dýrum, ferđast, prófa nýja hluti, góđar bíómyndir og bćkur einnig í miklu uppáhaldi og ég tel sjálfa mig hafa nokkurn áhuga á heimspeki og andlega ţćttinum í lífinu. Algjört freak I know, ekki láta ykkur bregđa.

Sniđugt hestatengt efni

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...